Meyland
Vintage Y2K sítt flauelspils - M
Vintage Y2K sítt flauelspils - M
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage Y2K sítt pils úr mjúku, fínrifluðu og dökkbláu flaueli. Pilsið er frá merkinu Stroke og með beinu, tímalausu sniði. Það er með háu mitti, hliðarvösum og beltislykkjum, Pilsið er hneppt og rennt að framan og með klauf að aftan. Efnið er úr bómull með smá teygju (98% bómull, 2% lycra) sem gerir það einstaklega þægilegt. Fullkomin flík sem hægt er að klæða upp eða niður og passar jafnt við strigaskó eða fínni stígvél. Ástand mjög gott. Merkt stærð 42. Áætluð stærð M.
Málin á pilsinu eru:
- Mitti: 78 cm
- Mjaðmir: 106 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
