Þjónustuskilmálar

Almennt

Viðskiptavinir Meylands eru hvattir til þess að kynna sér skilmála síðunar vandlega áður en þeir versla á meyland.is Með því að nota vefsíðu og netverslun meyland.is samþykkir og viðurkennir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma. Meyland áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessa skilmála án fyrirvara.

Meyland.is er rekið af Meyland ehf. kt: 580808-0420. Skrifstofa félagsins er staðsett að Hörðalandi 12, 108 Reykjavík.

Hefur þú einhverjar ábendingar um vefverslunina biðjum við þig um að senda okkur tölvupóst á meyland@meyland.is 

Vöruupplýsingar og verð

Meyland selur alfarið notaðar vörur og eru flestar áratuga gamlar og geta því vörurnar sýnt ummerki um notkun. Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir og upplýsa viðskiptavini um vörugalla hverju sinni. Upp geta komið tilvik þar sem okkur yfirsést minniháttar gallar eins og t.d. litlir blettir. 

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur. 

Meyland getur tímabundið boðið uppá tilboðsverð eða afslætti, með eða án sérstakra kóða. Meyland áskilur sér rétt til þess að afturkalla afslátt, tilboðsverð og kóða hvenær sem er. ATH að afsláttir eða kóðar gilda ekki ofaná vörur sem eru nú þegar á afslætti.

Greiðsluleiðir og afgreiðsla pantana


Meyland tekur við greiðslu frá flestum kortafyrirtækjum í gegnum greiðslugátt Teya.

Vörur eru einungis afgreiddar eftir að heimild fyrir greiðslu er komin í gegn.

Reynt er eftir bestu getu að afgreiða allar pantanir næsta virka dag og setja í póst.

Skil á vöru og gallaðar vörur

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Sé búið að fjarlægja miða eða varan t.d. skemmd þá fæst vöru ekki skilað. Kaupandi greiðir sendingarkostnað. Ef kaupandi hefur fengið gallaða vöru þar sem gallar voru ekki teknir fram í vörulýsingu þá skal kaupandi hafa samband á meyland@meyland.is innan 14 daga frá vöruafhendingu til að skila vöru og fá endurgreiðslu. Kostnaður við vöruskil, s.s. sendingarkostnaður greiðist alfarið af kaupanda. 

Meðhöndlun persónuupplýsinga

Þegar neytandi skráir sig á póstlista meyland.is þarf að skrá inn persónuupplýsingar, þ.m.t. fullt nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang. Sömu upplýsingar þarf að skrá þegar verslað er vörur á netversluninni. Með því að skrá sig á póstlista og/eða versla á netverslun meyland.is samþykkir neytandi söfnun persónuupplýsinga.

Korta- og greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu í gegnum greiðslugátt Teyja og aldrei geymdar af Meylandi.

Meyland fer með allar persónuupplýsingar af ítrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál.

Lög og varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun meyland.is á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.