Meyland
Vintage Y2K blómakjóll frá Oasis - M
Vintage Y2K blómakjóll frá Oasis - M
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage Y2K sumarkjóll frá Oasis. Kjóllinn er fallega blár með líflegu og smágerðu blómamynstri í rauðum, gulum og grænum tónum. Hann er úr léttu krep-efni sem krumpast lítið, með fínlegum stuttum ermum, nettum bindiborða í hálsmáli og mjóum böndum á baki til að móta mittið. Kjóllinn er ekki renndur og smeygist yfir höfuð. Lítil sem engin teygja í efni. Er úr 100% polýester. Ástand mjög gott. Merkt stærð UK14. Áætluð stærð M.
Málin á kjólnum eru:
- Brjóst: 92 cm
- Mitti: 84 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
