Fara í upplýsingar um vöru
1 af 8

Meyland

Vintage ullarblazer frá Mario Barutti - XL

Vintage ullarblazer frá Mario Barutti - XL

Venjulegt verð 10.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 10.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Vandaður og tímalaus vintage herrablazer frá gæðamerkinu Mario Barutti. Jakkinn er með fallegu, daufu köflóttu mynstri í ljósbláum og hlýjum brúnum tónum. Klassískt 90s snið með herðapúðum sem gefa flotta línu. Fullkominn sem oversized jakki hversdags eða við fínni klæðnað. Jakkinn er úr 100% hreinni nýrri ull og fóðrið úr viskós. Ástand mjög gott og fóðrið alveg heilt. Merkt stærð er herra 54 / R44. Áætluð stærð XL. Passar sem oversized á M - XL (eftir því hversu víður hann á að vera)

Málin á jakkanum eru:

  • Axlir: 100 cm
  • Brjóst: 118 cm
  • Mitti: 116 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu