Fara í upplýsingar um vöru
1 af 5

Meyland

Vintage svartur og gylltur 70s samkvæmiskjóll - L

Vintage svartur og gylltur 70s samkvæmiskjóll - L

Venjulegt verð 12.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 12.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Glæsilegur vintage 70s samkvæmiskjóll. Kjóllinn er tvískiptur, efri hlutinn er úr svörtu og gylltu devoré flaueli og neðri hlutinn úr svörtu efni. Kjóllinn er með háu hálsmáli, 3/4 ermum og renndur í bakið. Engar merkingar eru á kjólnum og hann er líklega heimasaumaður. Engin teygja í efni. Ástand mjög gott fyrir utan litla saumsprettu við hálsmál sem sést varla. Áætluð stærð L.

Málin á kjólnum eru:

  • Axlir: 76 cm
  • Brjóst: 104 cm
  • Mitti: 90 cm
  • Mjaðmir 114 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu