Fara í upplýsingar um vöru
1 af 11

Meyland

Vintage rúskinnsjakki frá Giorgio Mobiani - L

Vintage rúskinnsjakki frá Giorgio Mobiani - L

Venjulegt verð 14.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 14.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Fallegur og sérstakur vintage rúskinnsjakki frá ítalska merkinu Giorgio Mobiani. Jakkinn er úr mjúku, ekta rússskinni í ólífugrænum lit. Hann er með mjög sérstakri gataðri áferð (perforated suede) sem myndar flottan kontrast við slétt leðursmáatriðin á hneppingunni og kraganum. Sniðið er dæmigert fyrir 80s/90s tímabilið; afslappað, rúmt og með rúnuðum öxlum og 3/4 ermum. Jakkinn er smelltur en ath að það vantar eina smellu (sjá mynd) sem er ekki áberandi þegar jakkin er hafður opinn. Ástand gott, þar sem rúskinnið er með gataðri áferð, og því viðkvæmt, þá hafa myndast smá rifur á milli gata á fjórum stöðum (sjá myndir) en er ekki áberandi. Merkt stærð 44. Áætluð stærð M/L

Málin á jakkanum eru:

  • Axlir:  98 cm
  • Brjóst: 112 cm
  • Mitti: 108 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu