Meyland
Vintage Robert Anthony silki toppur - M/L
Vintage Robert Anthony silki toppur - M/L
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage 80s silki toppur frá Robert Anthony. Úr svörtu silki með fallegum handsaumuðum iridescent glerperlum og pallíettum, Toppurinn er með flottum bylgjuðum faldi, axlapúðum og stuttum ermum. Er festur að aftan með krækjum á hálsmálinu. Ytra birði er 100% silki, fóðrið er polyester. Engin teygja í efni og best ef toppurinn er aðeins rúmur. Ástand gott, það vantar glerperlur á nokkrum stöðum (sjá mynd) en það er ekki áberandi. Merkt stærð L. Áætluð stærð M/L.
Málin á toppnum eru:
- Axlir: 83 cm
- Brjóst: 108 cm
- Mitti: 108 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Share
