Meyland
Vintage rjómagul 90s pilsdragt frá Betty Barclay - M
Vintage rjómagul 90s pilsdragt frá Betty Barclay - M
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Tímalaus tveggja hluta 90s pilsdragt frá Betty Barclay. Dragtin er í fallegum rjómagulum lit með upphleyptri áferð í efninu sem gefur henni einstakan karakter. Jakkinn er með axlarpúðum, hnepptur að framan með fallegum tölum og með klassísku kragasniði. Jakkinn er einnig með vösum að framan og pilsið er með pencil sniði og rennt að aftan. Efnið er blanda úr viskós og bómull sem gerir dragtina mjúka en jafnframt þétta og klæðilega. Engin teygja er í efninu. Fullkomin dragt fyrir fínni tilefni sumarsins, vinnuna eða sem einstakir hlutar í hversdagsfatnaðinn. Jakkinn er í merktur stærð 40 en pilsið er merkt stærð 42. Áætluð stærð Medium. Ástand mjög gott.
Málin á jakkanum eru:
- Axlir: 86 cm
- Brjóst: 98 cm
- Mitti: 92 cm
Málin á pilsinu eru:
- Mitti: 80 cm
- Mjaðmir: 100 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
