Meyland
Vintage Oscar Jacobson tvíhnepptur ullarblazer - M
Vintage Oscar Jacobson tvíhnepptur ullarblazer - M
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage herra ullarblazer frá hinu virta sænska merki Oscar Jacobson. Jakkinn er tvíhnepptur, í sígildum dökkbláum lit með bláu og brúnu teinóttu munstri. Jakkinn er með axlarpúðum og strúktúrað, aflsappað snið sem hentar vel oversized. Jakkinn er léttur úr 100% hreinni nýrri ull og fóðrið úr viskós. Ástand mjög gott. Merkt stærð B48. Áætluð stærð, medium.
Málin á jakkanum eru:
- Axlir: 88 cm
- Brjóst: 104 cm
- Mitti: 94 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
