Meyland
Vintage Moncara plíserað pils - Medium
Vintage Moncara plíserað pils - Medium
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage plíserað midi pils frá Moncara. Líklegast síð 70s eða upphaf 80s. Svart plíserað með fallegu breiðu mittisbandi úr blúndu með teygju sem gerir pilsið mjög klæðilegt. Með rennilás á hliðinni. Klassískt pils sem er auðvelt að dressa upp eða niður. Líklegast úr polyester. Ástand mjög gott. Merkt stærð 40. Áætluð stærð M.
Málin á pilsinu eru:
- Mitti: 70 - 84 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
