Meyland
Vintage Mirek Modell konungsblár plíseraður kjóll - M/XL
Vintage Mirek Modell konungsblár plíseraður kjóll - M/XL
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage Mirek Modell 70/80s kjóll. Gullfallegur úr kóngabláu plíseraðu efni. Hálsmálið er hringlaga með silfruðum útsaumi. Ermarnar eru hálfsíðar og víðar "engla ermar". Sniðið er einstaklega klæðilegt með teygju í mittinu sem gefur sveigjanleika í stærð. Lykkjur fyrir belti en beltið vantar. Renndur í bakið. Kjóllinn er úr 73% triacetate og 27% nylon og fóðraður með mjúku teygjanlegu efni. Ástand mjög gott. Áætluð stærð M-XL (teygja í mittinu).
Málin á kjólnum eru:
- Brjóst: 100 cm
- Mitti: 70 - 104 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
