Fara í upplýsingar um vöru
1 af 6

Meyland

Vintage Leslie Fay geometrískur kjóll - M/L

Vintage Leslie Fay geometrískur kjóll - M/L

Venjulegt verð 7.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 7.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Vintage Leslie Fay 80s kjóll með fallegu geometrísku munstri í grænum, bláum og fjólubláum litum. Kjóllinn er með hálfháum kraga, hnepptur niður að mitti að framan með vönduðum tölum í stíl, og með síðar ermar. Pilsið er plíserað sem gefur því fallega hreyfingu. Kjóllinn er með teygju í mittið sem gefur sveigjanleika í stærð. Það eru lykkjur fyrir belti en beltið vantar. Miðinn er orðinn máður en kjóllinn er líklegast úr 100% polyester. Ástand mjög gott fyrir utan blett á kraga (sjá mynd), þar sem efnið er svo munstrað þá er bletturinn ekki áberandi við notkun. Áætluð stærð M/L (teygja í mittinu).

Málin á kjólnum eru:

  • Axlir: 82 cm
  • Brjóst: 104 cm
  • Mitti: 70 - 100 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu