Meyland
Vintage grafískt 90s midi pils - L/XL
Vintage grafískt 90s midi pils - L/XL
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage 90s millisítt pils með stílhreinu, grafísku mynstri í fallegum bláum tónum á svörtum grunni. Pilsið er með flötu mittisbandi að framan en þægilegri teygju að aftan sem gerir það sveigjanlegt í stærð. Rennt og hneppt á hlið. Efnið er létt, þunnt og mjúkt, innri miðinn er máður en pilsið er líklegast úr viskós. Auðvelt er að dressa pilsið upp eða niður. Ástand mjög gott. Áætluð stærð L/XL.
Málin á pilsinu eru:
- Mitti: 82 - 96 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
