Meyland
Vintage frotte 70s sumarkjóll - M/L
Vintage frotte 70s sumarkjóll - M/L
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Dásamlegur 70s sumarkjóll úr mjúku og þægilegu bómullarfrotte. Kjóllinn er hvítur með líflegum retró rauðum og appelsínugulum blómum. Kjóllinn er opinn í bakið, renndur að aftan með empire waist og A-pilsi. Kjóllinn "bundinn" fyrir aftan háls, búið er að sauma hlýrana saman en auðvelt að spretta upp saumunum til að stilla af lengdina. Er líklegast heimasaumaður. Úr 100% bómull. Engin teygja í efni. Ástand mjög gott. Áætluð stærð M/L.
Málin á kjólnum eru:
- Undir brjóst: 90 cm
- Mitti: 92 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
