Fara í upplýsingar um vöru
1 af 12

Meyland

Vintage Fink modell tveggja hluta co-ord - M

Vintage Fink modell tveggja hluta co-ord - M

Venjulegt verð 15.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 15.900 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Alveg geggjað vintage 90s sett frá Fink modell. Settið samanstendur af léttum jakka með axlarpúðum og hálfsíðum ermum og toppi í stíl. Settið er með æðislegu svörtu og hvítu grafísku munstri með gulu, rauðu og bláu lita poppi. Frábært saman sem statement lúkk en það er líka auðvelt að stíla flíkurnar í sitthvoru lagi, t.d. toppinn undir einlitan blazer eða jakkann við gallabuxur og hlýrabol. Er úr 100% polyester. Ástand mjög gott. Lykkur fyrir mjótt belti á toppnum en ekkert belti fylgir með. Merkt stærð uk14, eu 42. Áætluð stærð, medium.

Málin á jakkanum eru:

  • Axlir: 84 cm
  • Brjóst: 110 cm
  • Mitti / mjaðmir: 108 cm

Málin á toppnum eru:

  • Brjóst: 98 cm
  • Mitti: 100 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu