Fara í upplýsingar um vöru
1 af 6

Meyland

Vintage dökkbláar stuttbuxur frá Sans Doute - M

Vintage dökkbláar stuttbuxur frá Sans Doute - M

Venjulegt verð 6.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 6.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Vintage stuttbuxur frá Sans Doute. Buxurnar eru fallega dökkbláar, háar í mittið og með fellingum að framan. Þær eru hnepptar og renndar að framan með beltislykkjum og vösum á hliðum, að aftan er gervirassvasi. Sniðið á buxunum er vítt og strengurinn er með teygju, þær eru því mjög þægilegar. Fullkomnar fyrir sumarið. Buxurnar eru úr 50% polyester og 50% viskós. Ástand mjög gott. Merkt stærð 14. Áætluð stærð M.

Málin á buxunum eru:

  • Mitti: 68 - 82 cm
  • Mjaðmir: 124 cm
  • Skálmvídd: 76 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu