Meyland
Vintage Diana Bental silkikjóll - Medium
Vintage Diana Bental silkikjóll - Medium
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage 80s kjóll frá breska merkinu Diana Bentall. Túrkísblár skyrtukjóll úr hágæða ítölsku silki (Pura Seta) með fallegu jacquard-ofnu mynstri. Kjóllinn er hálfhnepptur með teygju í mittið, plíseruðu pilsi, axlarpúðum og fallegum púffermum. Auðvelt að dressa upp eða niður. 100% silki. Engin teygja í efni. Með lykkjum fyrir belti en beltið fylgir ekki með. Ástand mjög gott. Áætluð stærð M.
Málin á kjólnum eru:
- Axlir: 80 cm
- Brjóst: 104 cm
- Mitti: 68-88 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Share
