Meyland
Vintage Cartoon grafískur 80s kjóll - M/L
Vintage Cartoon grafískur 80s kjóll - M/L
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Skemmtilegur vintage 80s kjóll frá þýska merkinu Cartoon. Kjóllinn er svartur með áberandi grafísku munstri með hárauðum þríhyrningi yfir brjóstið og retró doppum. Klassískar batwing ermar, stroff á hliðum og vasar að framan. Sniðið er vítt og þægilegt. Úr 100% viskós. Ástand mjög gott. Merkt stærð M. Áætluð stærð M, getur líka passað á L fer eftir hversu víður hann á að vera, skoðið málin vel.
Málin á kjólnum eru:
- Brjóst: 130 cm
- Mitti: 120 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
