Fara í upplýsingar um vöru
1 af 9

Meyland

Vintage 90s Elinette síðkjóll - XL

Vintage 90s Elinette síðkjóll - XL

Venjulegt verð 12.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 12.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Fallegur síður 90s sumarkjóll frá danska merkinu Elinette. Kjóllinn er í bláum og túrkís tónum með fallegu, flæðandi vatnslita-blómamynstri. Kjóllinn er í klassísku og dæmigerðu 90s sniði: beint og flæðandi fall, ferkantað hálsmál og breiðir hlýrar. Hann er einstaklega klæðilegur og léttur. Kjóllinn er úr 100% polyester og það er engin teygja í efni. Renndur að aftan. Ástand mjög gott fyrir utan að það er smá tildregið í efninu neðarlega framan á kjólnum (sjá mynd). Merkt stærð 48. Áætluð stærð XL.

Málin á kjólnum eru:

  • Brjóst: 110 cm
  • Mitti: 108 cm
  • Mjaðmir: 128 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu