Fara í upplýsingar um vöru
1 af 4

Meyland

Vintage 80s tveggja hluta sett - M/L

Vintage 80s tveggja hluta sett - M/L

Venjulegt verð 16.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 16.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Einstakt vintage 80s tveggja hluta sett sem samanstendur af toppi og pilsi. Líklegast heimasaumað. Toppurinn er með hringlaga hálsmáli, 3/4 ermum og skáskornum peplum-faldi. Pilsið er sítt, með teygju í mittið og með klæðilegu mermaid-sniði, þrengra yfir mjaðmir og læri en víkkar svo út. Efnið er svart með metallic áferð og geometrísku munstri. Smá teygja í efni. Hægt er að nota hlutina saman sem glæsilegt samkvæmissett eða toppinn og pilsið sitt í hvoru lagi. Áætluð stærð M/L.

Málin á toppnum eru:

  • Axlir: 82 cm
  • Brjóst: 106 cm
  • Mitti: 86 cm

Málin á pilsinu eru:

  • Mitti: 76 - 92 cm
  • Mjaðmir: 106 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu