Meyland
Vintage 80s silfur toppur - M/L
Vintage 80s silfur toppur - M/L
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage 80s silfur toppur. Einstakur toppur úr silfruðu efni með svörtum doppum úr flauel. Toppurinn er opinn í bakið, efnið fellur fallega og rammar inn bakið. Hálsmálið er hátt og smellt að aftan með glitrandi smellum. Toppurinn er með vítt snið, batwing ermar, siður og bundinn yfir mjaðmirnar. Klassískur 80s toppur. Ómerktur og líklegast heimasaumaður. Líklegast úr polyester. Engin teygja í efni. Ástand mjög gott. Sniðið á toppnum er afslappað og vítt yfir brjóst og mitti. Hvernig hann passar fer aðalega eftir mjaðmamálinu. Myndi segja að hann passi á stærðarbilið M - L (fyrirsætan er 180 cm á hæð og notar stærð M).
Málin á toppnum eru:
- Mjaðmir: 110 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Share
