Fara í upplýsingar um vöru
1 af 5

Meyland

Vintage 80s rauð og svört blússa - L

Vintage 80s rauð og svört blússa - L

Venjulegt verð 4.500 ISK
Venjulegt verð Söluverð 4.500 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Falleg vintage blússa sem er að öllum líkindum heimasaumuð. Hún er með áberandi og töff abstrakt mynstri með rauðum, brúnum og svörtum tónum. Blússan er með klassísku 80s/90s sniði: hún er tvíhneppt að framan með fallegum sláarkraga og með fínum fellingum við úlnliðina sem gefa ermunum örlítið púff. Tölurnar að framan eru mismunandi. Hún kemur ótrúlega vel út við pils með belti eða við dökkar gallabuxur. Ástand mjög gott. Áætluð stærð L.

Málin á pilsinu eru:

  • Axlir: 90 cm
  • Brjóst: 110 cm
  • Mitti: 112 cm

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu