Meyland
Vintage 70s chiffon skyrtukjóll - S
Vintage 70s chiffon skyrtukjóll - S
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Vintage skyrtukjóll frá síð 70s eða upphaf 80s. Kjóllinn er dökkblár með blómamynstri í fjólubláum, bleikum og gulum tónum. Hann er með fallegum opnum kraga, hnepptur að framan og hálfgegnsæjum ermum en kjóllinn er annars fóðraður. Belti fylgir sem dregur mittið saman. Engin teygja í efni. Er úr 100% polýester. Ástand mjög gott. Áætluð stærð S.
Málin á kjólnum eru:
- Axlir: 78 cm
- Brjóst: 94 cm
- Mitti: 78 cm
Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.
Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.
Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.
Share
