Fara í upplýsingar um vöru
1 af 17

Meyland

Smodell vintage fjögurra hluta sett - M

Smodell vintage fjögurra hluta sett - M

Venjulegt verð 22.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 22.900 ISK
Útsala Uppselt
m/VSK

Alveg geggjað vintage 80s sett frá Smodell, framleitt í V-Þýskalandi. Mjög sjaldgæft er að finna svona heildstætt vintage sett. Settið samanstendur af jakka, toppi og pilsi ásamt belti. Settið er úr appelsínugulu efni sem er jacquard-ofið með grænum og fjólubláum röndum. Jakkinn er léttur og opinn, með hálfermum og þunnum axlarpúðum. Toppurinn er með hlýrum og fallegum fellingum að framan yfir brjóst og renndur á hlið. Pilsið er með fellingum, nær aðeins fyrir neðan hné, rennt og hneppt á hlið. Búið er að sauma teygju við strenginn til að víkka hann.  Frábært saman sem statement lúkk en það er líka auðvelt að stíla flíkurnar í sitthvoru lagi, t.d. toppinn við pils fyrir sumar outfit, jakkann við gallabuxur og bol. Pilsið eitt og sér við peysu og stígvél. Fjölmargir möguleikar til að mixa og matcha. og dressa upp og niður. Er úr 100% polyester. Engin teygja er í efninu fyrir utan teygjubútinn sem búið er að bæta við pilsið. Ástand mjög gott fyrir utan að beltið er orðið lúið að aftan (sjá mynd). Merkt stærð 40. Áætluð stærð, medium.

Málin á jakkanum eru:

  • Axlir: 82 cm
  • Brjóst: 100 cm
  • Mitti / mjaðmir: 100 cm

Málin á toppnum eru:

  • Brjóst: 94 cm
  • Mitti: 94 cm

Málin á pilsinu eru:

  • Mitti: 80 cm (plús teygja sem er 7 cm að lengd, sjá mynd)
  • Mjaðmir: 128 cm

Belti passar fyrir 77 - 84 cm mitti.

Vintage stærðir eru yfirleitt minni en nútímastærðir, við mælum með að skoða málin á flíkinni og bera saman við þín eigin mál samhliða því að horfa á merkta stærð.

Allar vörur í versluninni eru notaðar og flestar áratuga gamlar. Þær eru því með eðlilegt slit. Hver flík er skoðuð og tekið fram í lýsingu ef það vantar tölur eða álíka. Hins vegar getur okkur alltaf yfirsést eitthvað. Mælt er með að þvo flíkur áður en þær eru notaðar.

Hægt er að skila eða skipta vöru innan 14 daga frá því varan var keypt og fá endurgreitt. Að því gefnu að varan sé í sama ástandi og hún var þegar hún var keypt og enn með áföstum miða. Kaupandi greiðir sendingarkostnað.

Sjá alla lýsingu